Hvað viltu láta gera? Láta leggja miserfiða fjallahjólastiga fyrir byrjendur og lengra komna í móann fyrir ofan Jaðarsel. Þetta yrði ekki mikið rask og sæist ekki mikið, gætu verið litlir stökkpallar, skemmtilegar beygjur og nýtt yrði svæði sem er annars bara lúpínubreiða. Hvers vegna viltu láta gera það? Frábært fyrir krakka og fullorðna sem vilja stunda útivist í hverfinu.
Frábær hugmynd og eitthvað sem vantar. Gerum Reyjavík að heilsu útópíu borg!
Það vantar sárlega fleiri fjallahkólastíga!
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er í uppbyggingu og/eða breytingar fyrirhugaðar á komandi árum og því ekki tímabært að kjósa um að svo stöddu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
Þetta getur líka átt vel með skíðasvæðinu. Hægt væri að nota skíðalyftuna á sumrin til að koma hjólurum upp. Það ágætis stígar þarna í móanum til að hjóla á en á mörgum þeirra er bara hægt að nota á vorin og síðla hausts vegna lúpínu sem vex yfir allt. Þetta er frábær hugmynd sem gaman væri að sjá framkvæmda að metnaði.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation