Hvað viltu láta gera? Tel ástæðu til að hlúa betur að börnunum í hverfinu sem hafa áhuga á útiveru með því að bæta við hjólabrettarampi í neðri hluta Seljahverfis. Til dæmis væri hægt að staðsetja hann nálægt íþróttasvæði ÍR. Hjólabrettarampar nýtast bæði fyrir hlaupahjól og hjólabretti. Hvers vegna viltu láta gera það? Hjólabrettarampar eru vinsælir á meðal barna í hverfinu
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hugmyndin er ekki gerleg eða framkvæmanleg á umræddu svæði og/eða svæði er ekki á borgarlandi. Það er önnur áþekk hugmynd sem komst áfram í uppstillingu sem ber heitið „Gera upp brettagarðinn við Jafnasel“ og felur í sér að stækka og endurbæta hjólabrettagarð sem er staðsettur í Seljahverfi. Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
Þessa aðstöðu vantar sárlega á fleiri stöðum en við Jaðarsel.
Væri frábært að fá hjólabrettaramp við íþróttasvæði ÍR. Mikill áhugi í hverfinu á jaðarsporti og hvetur þetta unga krakka, sem eru ekki endilega í öðrum íþróttum, til aukinnar útiveru.
Það væri frábært að fá hjólabrettaaðstöðu nálægt ÍR. Það eykur hreyfingar- og útivistarmöguleika svæðisins og styður við jaðarsportin, sem eru að verða æ vinsælli meðal ungu kynslóðarinnar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation