Hvað viltu láta gera? Hita upp Fálkabakka, alla leið að Vesturhólum og búa til hringtorg við Höfðabakka og Vesturhóla. Hvers vegna viltu láta gera það? Bílar festast á þessari leið að vetri til og á niðurleið í 90 gráðu beygunni á Höfðabakkanum hafa bílar og strætisvagnar farið út af (á stórhættulegum stað). Einnig er alltof oft ekkert nema heppnin ein að ekki verði daglegir árekstrar á gatnamótunum, Höfðabakki - Vesturhólar. Einnig þarf að skoða vinstri beygjuna frá Höfðabakka inn á Fálkabakkann.
Löngu tímabært.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins og verkefnið er háð samþykki skipulags- og samgönguráðs. Einnig felur upphitun í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation